25.1.2009 | 03:40
Tónlistarhúsið og valkostirnir þrír
Framkvæmdir við tónlistarhúsið hafa legið niðri síðan í byrjun janúar en þá höfðu Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) ekki fengið greitt fyrir vinnu við byggingu hússins í 3 mánuði. Sagt er að viðræður séu í gangi milli ríkis, borgar sem eiga Austurhöfn-TR um yfirtöku á Portus sem sá um fjármögnun, byggingu og rekstur tónlistarhússins. Viðræðurnar munu vera flóknar og hafa tekið langan tíma. Öðru hvoru fréttist að aðilar séu bjartsýnir um að samningar náist fljótlega.
Hvernig sem fer er ljóst að ríki og borg þurfa að taka að sér að fjármagna framhaldið. Kostnaður hússins, sem upprunalega var áætlaður 12 milljarðar, verður líklega mun meiri enda er krónan fallin og vextir miklu hærri en lagt var upp með.
Ríki og borg standa nú frammi fyrir þremur valkostum.
1 Hætta við
Þjóðin skuldar of mikið. Þeir peningar sem til eru verða að fara til arðbærari og brýnni verkefna. Ókláruð byggingin liggur undir skemmdum og verður rifin eftir nokkur ár.Tap: Giskum á 7 milljarða.
2 Bíða
Gerum bara nóg til að forða eignum frá tapi. Setjum upp hjúpinn, sem er sagður langt kominn í framleiðslu, gerum húsið fokhelt. Klárum svo hitt þegar við höfum efni á því.Viðbótarfjárfesting: Giskum á 5 milljarða.
3 Klára
Komum húsinu í rekstrarhæft form svo það geti aflað tekna upp í kostnað með ráðstefnum og tónleikahaldi.Viðbótarfjárfesting: Giskum á 10 milljarða.
Allt eru þetta vondir kostir en við þurfum að velja. Ég vel leið 2 að gera fokhelt og bíða svo með restina. Sú leið forðar eignatjóni, skapar störf og heldur því opnu að húsið klárist í framtíðinni. Of dýrt að klára húsið strax.
Ef leið 2 kostar 5 miljarða þá eru það samt miklir peningar og erfitt að réttlæta slíka fjárfestingu á sama tíma og skera þarf niður í öllum ríkisútgjöldum.
En gefumst ekki upp strax. Það eru án efa til þeir einstaklingar, listamenn og fyrirtæki sem vilja styðja verkefnið. Glerhjúpur Ólafs Elíassonar er stórfenglegt listaverk sem margir hérlendis og erlendis vilja sjá verða að veruleika.
Hefjumst handa núna við að stofna og kynna vinafélag tónlistarhússins. Það félag myndi hefja undirbúning að söfnun fjármagns til að ljúka húsinu.
Vinafélagið gæti haldið úti vefsíðu þar sem tekið væri á móti frjálsum framlögum. Nafnalisti gefenda verður varanlegur hluti af húsinu. Allir sem gefa er með í happadrætti hússins svo lengi sem þeir lifa. Þeir fá afslætti á viðburði, enda eru þeir í raun búnir að borga fyrirfram. Það eru til ótal fyrirmyndar af svona átaksverkefnum erlendis, fullt af hugmyndum sem má nýta og óþarfi að finna hjólið upp.
Vinafélag tónlistarhússins gæti líklega safnað nokkrum milljörðum. Megnið af framlögum væru smá en nokkur væru stór. Er svona útkoma nokkuð óhugsandi á tveimur árum?
100.000 x 1.000 kr = 100.000.000 kr
50.000 x 10.000 kr = 500.000.000 kr
10.000 x 50.000 kr = 500.000.000 kr
5.000 x 100.000 kr = 500.000.000 kr
1.000 x 500.000 kr = 500.000.000 kr
500 x 1.000.000 kr = 500.000.000 kr
100 x 5.000.000 kr = 500.000.000 kr
10 x 10.000.000 kr = 100.000.000 krSamtals: 3.2 milljarðar. Tja... virðist ekki alveg ómögulegt.
Sumir myndu núna benda hversu miklu betur slíkum fjármunum væri varið til þarfari mála, t.d. að hlúa að öldruðum eða greiða niður skuldir þjóðarinnar. Það væri rétt ef þetta væru skattar en þetta eru frjáls framlög. Peningar sem fólk ræður hvað það gerir við og engin leið að vita hvort féð hefði nýst í eitthvað verðugra ef það hefði ekki verið gefið til tónlistarhússins.
Viðhorf mitt til tónlistarhússins er semsé að ríki og borg eigi að hætta þessu hangsi. Taka ákvörðun strax um að klára hjúpinn og gera húsið fokhelt svo það grotni ekki niður. Stofnsetja vinafélag án tafar og opna farveg fyrir frjáls framlög.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt 26.1.2009 kl. 23:04 | Facebook
Athugasemdir
Það væri glapræði að láta húsið grotna niður. Eins og staðan er væri viturlegast að ganga þannig frá húsinu að það liggi ekki undir skemmdum. Því miður er ekki hægt að réttlæta meiri kostnað í bili a.m.k.
Annars myndi ég vilja hafa hendur í hári "auðmannanna" okkar og láta þá vinna dag og nótt við að afla þessu verkefni og þjóðarskútunni frekari tekna. Þeir sem komu okkur i þá stöðu sem við erum í verði látnir sæta ábyrgð (nýtt á Íslandi!) og taka þannig út sína refsingu að vinna þjóðinni gagn en ekki stjórnlausri græðgi sinni. Við ættum að virkja þann eiginleika þessara kóna landi og þjóð í hag. Þeir yrðu náttúrlega að gera þetta á siðlegan og löglegan hátt, sem yrði að vísu nýtt fyrir þeim - en jákvæð áskorun engu síður.
Árni Hallgrímsson (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 10:15
Þetta yrði einskonar áskorun um siðbót til þeirra sem fóru hér um rænandi og ruplandi. Þeir gætu þá snúið aftur heim og horfst í augu við sjálfa sig og framan í þjóð sína.
Árni Hallgrímsson (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 10:23
Það kemur hvergi fram í allri þessari umræðum um húsið að Kínverjarnir eru með tryggingu fyrir byggingu gler kúpulsins og það er ekki hægt að hætta við. Þeir munu smíða hann no matter what.
Finnur (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 11:38
Finnur,
Takk fyrir þessa ábendingu. Ég vissi ekki að samningurinn væri án útleiðar. Veist þú nokkuð hvað þetta er há upphæð?
Það virðist þá skynsamlegt að taka við glerhjúpnum og setja hann upp frekar en að láta hann grotna niður í Kína fullborgaðan.
Frosti Sigurjónsson, 27.1.2009 kl. 16:07
Ég legg til að eignir þess vanhæfa fólks sem byrjaði á þessarri geðveiki og tók ákvarðanir um að ráðstafa skattfé í þetta verði seldar til að greiða fyrir þennan fjárans monthjúp, úr því búið er að semja um hann. Það mætti einnig reyna að semja við Kínverjana um að þeir hætti nú þegar við þetta og borga þeim skaðabætur sem væru lægri en kostar að ljúka þessu. Steipukumbaldann mætti nýta sem bílastæðahús eða hreinlega brjóta húsið ofan í kjallarann og slétta yfir.
Guðjón (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 15:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.