15.4.2011 | 19:43
Ættu stjórnendur að nota aðstöðu sína í pólitískum tilgangi?
Flestir hafa skoðanir á pólitík og auðvitað eru stjórnendur fyrirtækja þar engin undantekning. Það kemur stundum fyrir að stjórnendur beiti vörumerki og áhrifum fyrirtækisins til að vinna sínum pólitísku skoðunum fylgi í samfélaginu. Hér er því haldið fram að slíkt sé í misnotkun á aðstöðu og geti leitt til tjóns bæði fyrir eigendur og samfélagið.
Stórfyrirtæki eru iðulega í eigu fjölmargra hluthafa. Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að allir eigendur hafi sömu skoðun í pólitík, hvað þá að meirihluti hluthafa sé sammála pólitískum skoðunum stjórnandans. Tillitsemi við ólíkar skoðanir hluthafa er því gild ástæða fyrir því að stjórnendur gæti hlutleysis í störfum sínum.
En tillitsemi er þó ekki eina ástæðan. Flest fyrirtæki hafa hagsmuni af því að höfða til sem flestra viðskiptavina, en ef fyrirtækið tekur afgerandi pólitíska afstöðu getur slíkt virkað fráhrindandi fyrir tiltekinn hluta viðskiptavina með tilheyrandi tapi fyrir fyrirtækið.
Dæmi eru um að stjórnendur stórfyrirtækja beiti stjórnvöld þrýstingi og hóti jafnvel að fara með fyrirtækin úr landi. Þar er illa farið með áhrifastöðu og traust eigenda.Það væri líka óheppilegt fyrir lýðræðið í landinu ef fyrirtækjum væri almennt beitt með þessum hætti. Eftir því sem fyrirtæki beita sér meira, því minni verða áhrif kjósenda.
Farsælast er að stjórnendur sneiði hjá því að blanda fyrirtækjum í pólitísk álitamál. Þeir geta að sjálfsögðu tjáð sig opinberlega um pólitík, en þá er réttast að taka fram að um persónulegar skoðanir sé að ræða, en ekki afstöðu fyrirtækisins.
Meginflokkur: Viðskipti og fjármál | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Góð grein hjá þér Frosti og þakka þitt framlag fyrir kosningarnar sem haldnar voru um síðustu helgi.
Persónulega mun ég hugsa mig tvisvar um áður en ég geng inn í verslun Pfaff á Íslandi og ef ég gæti væri ég búinn að segja mig úr ASÍ. Svona gæti ég lengi talið upp, en þetta er nóg til að skilaboð mín komist til skila.
Gunnar Heiðarsson, 16.4.2011 kl. 08:54
Hagsmunagæsla fyrirtækja er orðin hápólitísk, því miður og færslan þín þörf ábending á málinu.
Aðalbjörn Steingrímsson, 16.4.2011 kl. 12:01
Alveg sammála ykkur. Fyrirtæki eru hætt að vera fyrirtæki, mörg af þeim eru orðin eins og útungunarvél pólitískra hagsmunatengsla.
Ómar Gíslason, 16.4.2011 kl. 17:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.