Eftirfarandi erindi var sent Innanríkisráðuneytinu 4. mars sl. Ráðuneytið hefur staðfest viðtöku og ráðherran sagt í fjölmiðlum að erindið sé komið í vinnslu.
Hr. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra
Sölvhólsgötu 7
150 Reykjavík
Erindi: Er kynningarstarf Evrópusambandsins á Íslandi lögbrot?
Evrópusambandið fjármagnar Evrópustofu sem tók til starfa 21. janúar á þessu ári og hefur það markmið að “stuðla að aukinni umræðu, þekkingu og skilningi á eðli og starfsemi ESB.” Evrópusambandið leggur Evrópustofu til 1,4 milljónir evra á tveim árum. Evrópustofa gefur út kynningarefni í bæklingum og öðru formi til dreifingar. Evrópustofa hefur staðið að fjölda kynningarfunda víða um landið. Meðal framsögumanna er sendiherra ESB, (t.d. á opnun fundi um ESB á Akureyri 29. febrúar sl.)
Ofangreindar upplýsingar má finna á vefsíðu Evrópustofu: www.evropustofa.is
Spurt er hvort fyrirlestrar og fundir sendiherra ESB víða um land stangist á við eftirfarandi lög:
Úr 1. tl. 41. gr laga nr. 16/1971 Lög um aðild Íslands að alþjóðasamningi um stjórnmálasamband: “Það er skylda allra þeirra, sem njóta forréttinda og friðhelgi, að virða lög og reglur móttökuríkisins, en þó þannig að forréttindi þeirra eða friðhelgi skerðist eigi. Á þeim hvílir einnig sú skylda að skipta sér ekki af innanlandsmálum þess ríkis.”
Spurt er hvort útgáfustarf Evrópustofu, sem fjármögnuð er af erlendu ríkisvaldi, varði við eftirfarandi grein:
Úr 1. gr. laga nr. 62/1978 Lög um bann við fjárhagslegum stuðningi erlendra aðila við íslenska stjórnmálaflokka og blaðaútgáfu erlendra sendiráða á Íslandi: “Þá er erlendum sendiráðum á Íslandi óheimilt að kosta eða styrkja blaðaútgáfu í landinu.”
Spurt er hvort Evrópustofa geti í nokkru tilliti talist hlutlaus aðili þegar kemur að kynningu á Evrópusambandinu. Má meta til fjár kynningu Evrópustofu á kostum aðildar, en það er eitt helsta baráttumáli Samfylkingar. Fellur kynningarstarf Evrópustofu ekki undir skilgreiningu eftirfarandi laga um framlög og þar með brot á eftirfarandi lögum:
Úr 6. gr laga nr. 162/2006 Lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra: “Óheimilt er [stjórnmálasamtökum] að veita viðtöku framlögum frá erlendum ríkisborgurum, fyrirtækjum eða öðrum aðilum sem skráðir eru í öðrum löndum.”
Að lokum er þeirri spurningu beint til Innanríkisráðuneytisins hvort starfsemi Evrópustofu eða sendiráðs ESB kunni að stangast á við einhver önnur lagaákvæði en hér voru talin upp.
Stjórnvöld stefna að því að ljúka aðildarsamningi við ESB og leggja hann fyrir þjóðaratkvæði. Lýðræðisleg umræða um kosti og galla aðildar er í gangi meðal kjósenda. Slík umræða þarf að geta átt sér stað á grundvelli jafnréttis og án inngripa erlendra hagsmunaaðila.
Það er ljóst að óheft inngrip fjársterkra hagsmunaaðila skekkja sjálfan jafnréttisgrundvöll hins beina lýðræðis. Ef gildandi lög í landinu girða ekki nú þegar fyrir slík inngrip þarf að bregðast tafarlaust við, vegna þess að erlent stjórnvald með ótakmörkuð fjárráð og beina hagsmuni hefur nú þegar hafið mikið og skipulagt átak til að móta afstöðu íslenskra kjósenda sér í hag.
Virðingarfyllst,
Frosti Sigurjónsson
Á 19. öld ákvað ónafngreindur breskur lávarður að heimsækja hina fögru miðjarðarhafseyju Sardiníu, ásamt fjölskyldu sinni og þjónustufólki. Ferðalagið gekk eins og í sögu. Lávarðurinn og fylgdarlið hans gisti aðeins á bestu hótelum og snæddi aðeins á bestu matstöðunum - ekkert var sparað.
Eyjaskeggjar tóku að sjálfsögðu vel á móti þessum forríku ferðamönnum. Lávarðurinn ákvað líka að framlengja dvölina um tvo mánuði. Kostnaðurinn var að sjálfsögðu verulegur. Alls staðar greiddi lávarðurinn með ávísunum í pundum á viðurkenndan breskan banka. Ávísunum lávarðsins var vel tekið, enda voru þær í pundum og á þessum árum var gjaldmiðill eyjaskeggja ekki upp á marga fiska.
Það eina sem skyggði á heimferðina voru vaxandi áhyggjur lávarðarins af því hve óskaplega margar ávísanirnar urðu og hversu stóra spildu af ættaróðalinu hann þyrfti nú að selja til að standa í skilum við bankann.
En svo fór að mörgum mánuðum eftir heimkomuna bólaði ekkert á ávísunum frá Sardiníu. Lávarðurinn var undrandi og feginn. Árin líðu og aldrei bárust ávísanirnar frá Sardiníu og lávarðurinn þurfti aldrei að greiða sumarfríið góða á Sardiníu.
Ávísanirnar voru aldrei innleystar. Þeir sem höfðu fengið greitt með ávísunum notuðu þær einfaldlega til að greiða fyrir eitthvað annað. Þær nutu meira trausts en mynt eyjaskeggja löngu eftir að lávarðurinn var allur. Þær urðu gjaldmiðill.
Spurningin er hinsvegar þessi: Hver borgaði fyrir ferðalag lávarðsins?
Já Ísland, vettvangur evrópusinna, birti heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu 19. nóvember. Fyrirsögnin er “Vissir þú?” og svo eru settar fram ýmsar upplýsingar sem eiga að sannfæra lesandann um ágæti þess að ganga í ESB. En er hægt að treysta þessum upplýsingum? Skoðum það.
“Að 2,5% Íslendinga skrifuðu undir áskorun um að draga umsóknina um aðild að Evrópusambandinu til baka, sem staðið hefur yﬁr síðan í byrjun september.”
>Nú hafa hátt í 9.000 skrifað undir áskorun www.skynsemi.is  Sá fjöldi myndi duga til að fylla Austurvöll og daglega bætast fleiri í hópinn þótt lítið sé auglýst. Aðildarsinnar láta hér í veðri vaka að 97.5% þjóðarinnar hafi ekki hug á því að skrifa undir áskorunina.
“Að 53% landsmanna vilja klára viðræðurnar við ESB og fá að kjósa um málið í þjóðaratkvæðisgreiðslu.”
>Réttara væri  “53% af þeim sem tóku afstöðu”, annars er gefið í skyn að engir hafi verið óákveðnir og grunsamlegt að gefa ekki upp hlutfall þeirra.
Í könnun MMR fyrir Andríki 14. nóvember var spurt um afstöðu til viðræðna án þess að spyrða þjóðaratkvæðagreiðslu við annan valkostinn. Niðurstaðan var mjög afgerandi. Minnihluti, eða 35,3%, vill halda umsókninni til streitu en 50,5% vilja draga umsóknina til baka, 14,4% taka ekki afstöðu. Af þeim sem tóku afstöðu vildu 59% draga umsóknina til baka en 41% vildu það ekki.
“Að 84% íslenskra ungmenna langar að vinna í öðru Evrópuríki til lengri eða skemmri tíma, sem er hæsta hlutfall allra ungmenna í Evrópu.”
>Um þetta er ekkert nema gott að segja, enda veitir EES aðild nú þegar íslenskum ungmennum færi á því að leita sér að vinnu í aðildarlöndum. Það gæti þó verið erfitt í reynd því atvinnuleysi er afar mikið meðal ungmenna í ESB og er 47% á Spáni, þar sem það er hæst.
“Að fólk í Evrópusambandinu hefur fæst heyrt um verðtryggingu, enda er hún afar sjaldgæf í aðildarríkjum ESB.”
>Alveg rétt. En innganga í ESB er samt hvorki nauðsynleg né nægileg til að losna við verðtryggingu. Upptaka evru mun ekki vera í boði fyrr en hér er kominn verðstöðugleiki og skuldir hafa lækkað. Mörg ár geta liðið frá inngöngu og þar til evra er tekin upp. Fram að því verður verðtrygging og lengur, nema við ákveðum annað á Alþingi.
“Að á sama tíma og íbúi í ESB borgar eitt og hálft hús þegar hann kaupir hús, borgum við tvö og hálft hús.”
>Þarna er vitnað í Vísbendingu 2010 sem vitnar í könnun Neytendasamtakanna frá 2005 sem ályktaði að hér væru raunvextir af húsnæðislánum 2,5-5% hærri en í 10 evrópulöndum.
Á hveitbrauðsdögum evrunnar voru vextir vissulega jafn lágir í öllum evruríkjum óháð því hversu skuldug þau voru. En það gjörbreyttist með skuldakreppuni 2008. Ísland og íslensk heimili munu ekki fá lága vexti fyrr en eftir að við höfum greitt niður megnið af skuldunum.
“Að við inngöngu í Evrópusambandið myndu tollar á vörum og landbúnaðarafurðum frá ríkjum ESB falla niður. Því má, samkvæmt nýrri skýrslu, gera ráð fyrir að verð á kjúklingum, eggjum og svínakjöti lækki um 40 – 50% og að verð á mjólkurafurðum lækki um 25%”
>Meðhöfundur umræddar skýrslu hefur nú sent grein í Fréttablaðið til að leiðrétta ofangreiddar afbakanir á niðurstöðunum og segir: “Sannleikurinn er sá að þar stendur mjög lítið um verð til neytenda. Erfitt er að draga nokkrar ályktanir um útsöluverð búvara út frá því sem fram kemur í skýrslunni.” og “Niðurstöður skýrslunnar byggja á mun sterkara gengi krónu en við búum við í dag”.
“Að krónan hefur misst 99.5% af verðgildi sínu gagnvart danskri krónu frá því að hún var tekin í notkun.”
>Gjaldmiðlar sveiflast verulega yfir löng tímabil. Vissir þú að USD hefur frá 1970 tapað 85% af verðgildi sínu gagnvart japönsku yeni? Það sem skiptir mestu er að hér á Íslandi hefur hagkerfið vaxið gríðarlega frá því að þjóðin fékk sjálfstæði. Þjóðin var ein sú fátækasta í Evrópu en telst nú meðal ríkustu þjóða heims. Trúir því nokkur að við værum 200 sinnum ríkari ef við hefðum haft hér danska krónu? (99.5%/0.5%=200) Framundan er ekki sami vöxtur og var frá 1944 og því er ólíklegt að óstöðugleiki krónu verði eins mikill í framtíðinni.
“Að meirihluti atvinnulífsins telur annan gjaldmiðil en krónuna þjóna Íslandi betur.
Annar gjaldmiðill 	61%
Íslenska krónan 		24%
Hvort sem er      	15%”
>Vitnað er í skýrslu Viðskiptaráðs sem kom út í febrúar 2011. Könnunin hefur líklega verið gerð nokkru áður og er því nær ársgömul. Í ljósi þeirra óskapa sem hafa dunið á evrusvæðinu undanfarna mánuði, kæmi ekki á óvart ef áhugi atvinnulífsins á evruaðild sé töluvert minni. Einnig spyrja hvort “Annar gjaldmiðill” á við um evru? Vildu þessir menn kannski fremur USD, NOK, CAD?
“Kaupmáttur frá 2008
Ísland		- 8,1%
Finnland 		  4,5%
Svíþjóð		  2,3%
Danmörk		     1%”
Hér er tímabilið valið af kostgæfni; Ísland nýbúið að lenda í bankahruni. Reyndar furðulegt að lífskjörin hafi ekki versnað enn meir en þetta. Hvers vegna ekki bera Ísland saman við lönd sem lendu í sæmilegu hruni eins og Írland eða Grikkland? Þetta er villandi samanburður ætlaður til að veikja trú á krónunni.
“Inn- og útflutningur vöru og þjónustu 2010 eftir löndum
ESB ríkin		Innfl.: 56,2%    Útfl.: 70,5%
Þar af evru ríkin	Innfl.: 27,2%   Útfl.: 49,8%
>Af þessu gæti grandalaus ályktað að útflutningur Íslands sé nánast 50% í evrum. Það er ekki svo, því helmingurinn af útflutingi okkar til evru ríkja er ál sem er verðlagt í USD. Útflutningur er því 37% í USD, en aðeins 27% í EUR. 14% er í GBP og afgangur í öðrum myntum.
Svo virðist sem Já Ísland hafi með þessari auglýsingu seilst full langt til að fegra málstaðinn. Slíkrar fegrunar ætti einmitt ekki að vera þörf ef aðild að ESB væri jafn frábær og aðildarsinnar vilja trúa.
Lissabon sáttmálinn hefur verið þýddur á Íslensku. Sáttmálinn lýsir réttindum og skyldum aðildarríkja í smáatriðum. Þess vegna er mikilvægt að þýðingin sé vönduð og nákvæm en því miður virðist það markmið ekki hafa náðst. Hér eru nokkur dæmi:
2. KAFLI, SÉRTÆK ÁKVÆÐI UM SAMEIGINLEGA STEFNU Í UTANRÍKIS- OG ÖRYGGISMÁLUM, 1. ÞÁTTUR ALMENN ÁKVÆÐI, 24. gr :
“Þau skulu forðast að gera nokkuð það sem vinnur gegn hagsmunum Sambandsins eða kynni að skaða áhrif þess sem afls í þágu samheldni í alþjóðasamskiptum.”
"They  shall  refrain  from  any  action  which  is  contrary  to  the  interests  of  the  Union  or  likely  to  impair  its  effectiveness  as  a  cohesive  force  in  international  relations."
Þetta er rangt þýtt því  "Cohesive force in international relations" þýðir “samheldið afl í alþjóðasamskiptum”, en alls ekki “afl í þágu samheldni í alþjóðasamskiptum”.
XXI. BÁLKUR ORKUMÁL 194. gr.
“1. Með tilliti til stofnunar og starfsemi innri markaðarins og með skírskotun til þarfarinnar á að varðveita og bæta umhverfið skal stefna Sambandsins í orkumálum miða að því, í anda samstöðu meðal aðildarríkjanna, að:
a) tryggja starfsemi orkumarkaðarins,
b) tryggja öryggi í orkuafhendingu í Sambandinu, “
"(b) ensure security of energy supply in the Union; "
Þetta telst röng þýðing því “supply” þýðir “framboð” en ekki “afhending” Lið b) ætti því frekar þýða þannig "tryggja öryggi orkuframboðs í Sambandinu."
Aðildarríki eru hér að samþykkja að Brussel taki ákvarðanir um öruggt orkuframboð (auðlindina) en ekki bara örugga afhendingu orku.
I. BÁLKUR FLOKKAR OG SVIÐ VALDHEIMILDA SAMBANDSINS 3. gr.
“1. Eftirtalin svið skulu falla undir fullar valdheimildir Sambandsins: a) tollabandalag, b) setning nauðsynlegra samkeppnisreglna vegna starfsemi innri markaðarins, c) peningamálastefna fyrir þau aðildarríki sem hafa evru sem gjaldmiðil, d) verndun lífrænna auðlinda hafsins innan sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar, e) sameiginleg viðskiptastefna. “
"1. The  Union  shall  have  exclusive  competence  in  the  following  areas: "
Exclusive þýðir að sambandið sé alfarið einrátt um þessa málaflokka. Sem mætti þýða "Sambandið skal hafa óskiptar valdheimildir á eftirfarandi sviðum". Þetta skiptir máli því aðildarríkin eru hér að samþykkja að lúta einhliða ákvörðunum ESB í þessum flokkum.
C. YFIRLÝSINGAR AÐILDARRÍKJANNA
“... og Evrópudagurinn 9. maí verða áfram í þessum löndum tákn samfélags borgara í Evrópusambandinu og tengsla þeirra við það. “
"... and Europe day May 9th will for them continue as symbols to express the sense of community of the people in the European Union and their allegiance to it."
Orðið „allegiance" getur þýtt: obligation, commitment, devotion, faith og loyalty. Þarna er á ferð yfirlýsing um hollustu við Evrópusambandið en ekki bara "tengsl" við það.
Finnst einhverjum fleirum en mér að þessar þýðingavillur séu best til þess fallnar að láta þennan grundvallarsáttmála Evrópusambandsins líta út fyrir að vera eitthvað ásættanlegri en hann er í raun og veru?
Íslensk þýðing: http://www.utanrikisraduneyti.is/media/esb/lissabon-sattmali/Lissabon-heildarskjal.pdf
Enska útgáfan: http://eur-lex.europa.eu/LexUriServ/LexUriServ.do?uri=OJ:C:2010:083:FULL:EN:PDF
Í aðdraganda Icesave kosninga gat verið erfitt fyrir kjósendur að finna hlutlausar fréttir og upplýsingar til að byggja atkvæði sitt á. Fréttablaðið og Morgunblaðið voru augljóslega á öndverðum meiði og það skilaði sér í fréttaflutningi þeirra af málinu. Jafnvel RÚV, sem á samkvæmt lögum að gæta fyllstu hlutlægni, tókst ekki að uppfylla skyldu sína að því leiti.
Það getur verið erfitt að koma auga á það hvenær fréttamiðill hagræðir fréttum og hvenær ekki. Sé það gert á augljósan hátt missir fréttin trúverðugleika og þar með áhrifamátt sinn. Þess vegna þurfa fréttamiðlar að fara fínt í allt slíkt. Aðferðirnar eru nokkuð vel þekktar.
Hér eru nokkur dæmi um aðferðir sem hérlendir fréttamiðlar hafa beitt til að “hagræða” fréttum í því skyni að fá fram “rétta” niðurstöðu í Icesave og ESB málum:
1) Velja til birtingar fréttir sem styðja “réttan” málstað
Það er aldrei hægt að gera öllum fréttum jafn hátt undir höfði, velja þarf úr og það val getur verið pólitískt.
2) Velja viðmælanda með “rétta” afstöðu
Oft er leitað til álitsgjafa og sérfræðinga til að varpa ljósi á atburði. Í Icesave málinu leituðu Fréttablaðið og RÚV áberandi oft til álitsgjafa sem töldu farsælla að samþykkja Icesave samningana. Skoðanir Þórólfs Matthíassonar virðist hafa átt mikinn hljómgrunn hjá stjórnendum fréttaskýringaþáttarins Spegilsins á RÚV. Óskað var álits hans 25 sinnum á árunum 2009/2010 (heimild: Svar ráðherra við spurningu þingmanns um efnið.)
3) Skammta “réttu” sjónarmiði meiri tíma / pláss
Til að ljá umfjöllun hlutlaust yfirbragð er vinsælt að gefa fulltrúum beggja sjónarmiða orðið en skammta svo ójafnan tíma. Í prentmiðli er hægt að velja úr tilvitnunum þannig að annað sjónarmiðið fái meira rými.
Í sjónvarpi og útvarpi er hægt að klippa til viðtöl í sama tilgangi.
Sé um beina útsendingu að ræða, er ekki hægt að klippa hlutina til. En þá er sú leið farin að bjóða fleiri gestum með “rétta” skoðun í þáttinn.
4) Traustari viðmælendur
Tunguliprir sérfræðingar er yfirleitt taldir meira sannfærandi en almúginn á götunni. Þannig mætti sem dæmi spyrja Evrópusérfræðing um kosti aðildar en spyrja síðan leikmann um ókostina.
5) Lævísleg hugtakanotkun
Þegar vissir fjölmiðlar fjölluðu um Icesave kröfuna þá notuðu þeir iðulega “Icesave skuldina”.
Evrópusambandið glímir nú við gríðarlega erfiðleika, sumir fjölmiðlar kjósa hins vegar að kenna erfiðleikana ávallt við “Evrópu” en ekki “Evrópusambandið”.
Ber fréttamiðlum að gæta hlutlægni?
Í lögum um RÚV segir að hlutverk almannafjölmiðilsins sé
“að veita víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga fréttaþjónustu um innlend og erlend málefni líðandi stundar og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða.”
Fróðlegt væri að gera faglega úttekt á því hvernig RÚV hefur tekist að uppfylla skyldur sínar að þessu leyti í Icesave og ESB málinu. Hve oft skyldi RÚV hafa freistast til þess að beita brellum eins og þeim sem voru tíundaðar hér að ofan?
Öðrum fréttamiðlum en RÚV er ekki skylt að gæta hlutlægni. Blaðamönnum er ekki heldur skylt að gæta hlutlægni í sínum störfum, ef ég skil siðareglur Blaðamannafélagsins rétt.
Verum raunsæ
Það er vissara að reikna með því að allir fréttamiðlar nýti það svigrúm sem þeir hafa til að hafa áhrif á okkur, ekki síst í aðdraganda þjóðaratkvæðis um mikilvæg málefni. Allir fréttamiðlar er hlutdrægir að vissu marki og allir þjóna þeir einhverjum hagsmunum.
Spyrjum því spurninga: Hvaða frétt var ekki birt? Hvers vegna er rætt við þessa viðmælendur en ekki aðra? Er þessi sérfræðingur hlutlaus? Hvað segja hinir fréttamiðlarnir um málið?
Það er skynsamlegt að neyta frétta á gagnrýnin hátt, treysta ekki á einn fréttamiðil, gera samanburð. Það er líka miklu skemmtilegra en að láta mata sig hugsunarlaust.
Sífelldar upp- og niðursveiflur á fjármálamörkuðum vekja grun um að fjármálakerfið sé í raun óstöðugt í eðli sínu. Góðu fréttirnar eru að það er hægt að gera það stöðugra með einföldum hætti.
Allir vita að hlutverk banka er að taka við innlánum og ávaxta þau með því að lána féð út. Færri vita  að bankar lána ekki bara út innlánin. Þeir búa að auki til viðbótarfjármagn úr engu og lána það út gegn vöxtum. Þetta er að sjálfsögðu mjög ábatasamt fyrir bankana og skýrir að einhverju leyti hvers vegna almenningur verður sífellt skuldugri. Það er ekki óalgengt að bankar láni út tíu sinnum hærri fjárhæð en sem nemur upprunalegum innlánum til þeirra. Þetta ótrúlega fyrirkomulag kallast brotaforðakerfi (fractional reserve) því “forði” bankana af innlánum er aðeins brot af því fjármagni sem þeir lána út.
Bankar hafa á einhvern undraverðan hátt fengið einkaleyfi til að prenta peninga á meðan öðrum er það sérstaklega bannað að viðlögðum þungum refsingum. Seðlabankinn gefur vissulega út seðla og mynt, en það eru í raun bankarnir sem búa til megnið af fjármagninu sem efnahagslífið þarf. Bankar búa fjármagnið til úr engu og rukka af því vexti. Staðan er því sú að nær allt fjármagn í landinu verður upphaflega til sem vaxtaberandi skuldir við bankana. Kannski var þetta ekki vandamál þegar bankar voru sameign þjóðarinnar og ágóðinn rann til samneyslu, en það verður að staldra við ef bankar í einkaeigu hafa einkaleyfi til að framleiða fjármagnið í landinu og innheimta vexti af því.
Þegar allt leikur í lyndi, bjóða bankar mikið fjármagn á lágum vöxtum. Fyrirtæki og neytendur freistast til að taka lán fyrir misgóðum fjárfestingum og jafnvel neyslu. Svo blakar fiðrildi vængjum einhverstaðar í fjarlægu landi og allt er breytt. Einhverjir tapa á glæfralegum fjárfestingum, bankar fara að innheimta skuldir af krafti, ótti um verðfall á mörkuðum breiðist út, bankar hækka vexti, hlutabréf lækka í verði og fjármagnskortur gerir vart við sig, sum fyrirtæki ráða ekki við hækkandi vexti og fara á hausinn. Samdráttur eða kreppa tekur við. Bankar hirða fyrirtæki og fasteignir á hrakvirði upp í skuldir - skuldir sem þeir bjuggu til úr engu.
Til að stöðva þessa hringekju offramboðs og skorts á fjármagni þarf að taka af bönkum leyfið til að framleiða fjármagn. Setja þarf 100% bindiskyldu á bankana. Verði það gert, munu bankar þurfa að einbeita sér alfarið að því að ávaxta innlán með því að lána þau út til arðbærra verkefna. Framleiðsla fjármagns yrði ekki í þeirra höndum heldur Seðlabankans.
Bankar myndu þá geta boðið upp á tvenns konar bankareikninga: annarsvegar vaxtalausa hlaupareikninga sem væru ávallt lausir til úttektar, og hinsvegar vaxtaberandi bundna sparireikninga. Bankar gætu eingöngu lánað út og ávaxtað það fé sem lagt væri á bundna sparireikninga. Bundnir reikningar væru bundnir til viss tíma eða uppsegjanlegir með vissum tímafyrirvara.
Með fullri bindiskyldu væru áhlaup á banka ástæðulaus því bankar myndu ávallt eiga nægt fé til að greiða út innistæður á hlaupareikningum. Þörf fyrir innistæðutryggingar væri því úr sögunni. Illa reknir bankar gætu farið á hausinn, en það myndi ekki valda keðjuverkun eins og er í dag. Kerfið væri stöðugt.
Með þessu væri búið að aðskilja tvö ólík verkefni: framleiðslu fjármagns og ávöxtun sparifjár. Illa reknir bankar gætu þá ekki lengur falið misheppnuð útlán með framleiðslu meiri peninga.
Seðlabankinn myndi hafa það hlutverk að stilla af magn peninga og fjármagns í samræmi við stærð hagkerfisins. Þetta myndi hann gera með útgáfu myntar og rafeyris án vaxtaútgjalda fyrir ríkissjóð (þjóðina). Sú leið væri mun beinni og skilvirkari en að fitla við stýrivexti og bindiskylduhlutfall. Verðbólga og verðlag yrði mun auðveldari viðfangs, því bankarnir væru ekki að freistast til að auka stöðugt fjármagn í umferð.
Brotaforðakerfið er sveifluvaldandi og gefur einkabönkum einkaleyfi til að framleiða fjármagnið í landinu. Það er löngu tímabært að íhuga aðra valkosti. Hversu lengi ætlum við að sætta okkur við óstöðugleika, verðbólgu og að allt fjármagn í landinu sé fengið að láni á vöxtum frá bönkum sem búa það til úr engu?
Nánari upplýsingar um fulla bindiskyldu:
Wikipedia: http://en.wikipedia.org/wiki/Full-reserve_banking
“Towards a 21st century banking and monetary system” :
http://www.positivemoney.org.uk/wp-content/uploads/2010/11/NEF-Southampton-Positive-Money-ICB-Submission.pdf
Þóríum er geislavirkt frumefni sem finnst í nægilegu magni á jörðinni til að mæta orkuþörf alls mannkyns í mörg hundruð ár, hugsanlega þúsund ár. Eitt kíló af þóríum getur skilað 200 sinnum meiri orku en fæst úr sama magni af úrani. Eitt gramm af þóríum gefur álíka mikla orku og 3,5 tonn af kolum.
Mikill og vaxandi áhugi er nú á þróun þóríum kjarnorkuvera. Margt bendir til að þau gætu orðið mun ódýrari og hættuminni en nútíma kjarnorkuver, sem byggja á úrani. Geislavirkur úrgangur yrði einnig brot af því sem fellur til í úran kjarnorkuverum.
Ef björtustu vonir ganga eftir, myndi þóríum tæknin draga úr þörf fyrir dýrt og mengandi jarðefnaeldsneyti.
Bandaríkjamenn gerðu tilraunir með þóríum kjarnakljúfa á árunum 1940 – 1970 og sú þekking er aðgengileg. En þrátt fyrir það mun þurfa verulega þróun og fjármagn til að koma fyrsta starfandi þóríum kjarnorkuverinu í gagnið.
Gangi allt að óskum gætu fyrstu þóríum kjarnorkuverin tekið til starfa eftir 10-15 ár. Orkuverin geta verið af ýmsum stærðum, gríðarstór eða örsmá og það eykur á notagildi þeirra. Kostnaður við orkudreifingu verður minni þar sem orkuverin geta verið miklu nær notendum.
Meðal þeirra þjóða sem hafa þegar lagt af stað í kapphlaupinu um þóríum tæknina eru Frakkar, Indverjar, Rússar, Japanir og Kínverjar. Bretar og Bandaríkjamenn íhuga þátttöku.
Stundum er tregða til að snúa frá þekktri tækni til að þróa eitthvað nýtt sem keppir við það gamla. Framleiðendur úran-kjarnorkuvera hafa fjárfest gríðarlega í núverandi tækni og þóríum tæknin er vissulega ógn við þá fjárfestingu. Það er því ólíklegt að kjarnorkuiðnaðurinn hafi frumkvæði að því að þróa þessa tækni.
Aðgangur að ódýrri orku er grunnforsenda þeirra lífsgæða sem vesturlandabúar hafa vanist. Með þóríum orku er von til þess að mæta orkuþörf hvers einasta íbúa jarðarinnar um ókomin árhundruð.
Fyrir þá sem vilja kynna sér þóríum orku betur er mælt með þessum krækjum:
http://www.youtube.com/watch?v=N2vzotsvvkw
http://energyfromthorium.com/
http://itheo.org/
Nýlega bárust fréttir af því “að landlæknir hafi undirritað samning við lyfjafyrirtækið Glaxo Smith Kline um kaup á bóluefni gegn HPV-sýkingingum og leghálskrabbameini. Ákveðið hefur verið að bólusetja allar 12 ára stúlkur.”
Bóluefnið heitir Cervarix en samkvæmt tilkynningu frá Glaxo var það prófað á stúlkum á aldrinum 15-25 ára, en landlæknir hefur ákveðið að nota það á 12 ára stúlkur. Fréttin heldur áfram:
“Með bólusetningunni verður komið í veg fyrir sýkingar af völdum HPV sem valdið geta leghálskrabbameini. Talið er að með almennri bólusetningu megi koma í veg fyrir um 60-70% leghálskrabbameins og um 40% alvarlegra forstigsbreytinga þess. Hér á landi greinast árlega um 17 konur með leghálskrabbamein og um 300 konur með alvarlegar forstigsbreytingar.”
Þarna er beinlínis fullyrt að Cervarix komi í veg fyrir sýkingu af völdum HPV. Hið rétta er að bóluefnið ver gegn smiti af aðeins fimm afbrigðum veirunnar (HPV-16 og HPV-18) en afbrigðin eru mun fleiri. Bólusettir einstaklingar geta því smitast af öðrum HPV afbrigðum.
Hver er ávinningurinn?
Smokkurinn veitir fullkomnari vörn gegn HPV veirum en Cervarix bóluefnið, auk þess sem smokkurinn ver gegn mörgum öðrum kynsjúkdómum. Bólusetning gegn HPV þýðir því alls ekki að óhætt sé að sleppa smokknum.
Í upplýsingum frá GSK er tekið fram að Cervarix veitir ekki öllum vernd gegn HPV.
Í Bandaríkjunum er tíðni leghálskrabbameins 7/100.000 en tíðni alvarlegra aukaverkana af bólusetningu 3.4/100.000
Í Bandaríkjunum hafa 80% af 50 ára konum fengið HPV sýkingu en 95% virðast hreinsa veiruna úr líkamanum hjálparlaust. 5% fá forstigsbreytingar sem síðar geta leitt til leghálskrabbameins. Þessar forstigsbreytingar uppgötvast við reglubundna skimun, yfirleitt löngu áður en krabbamein myndast. Reglubundin skimun er mun öruggari leið en bólusetning og án aukaverkana.
Þrátt fyrir bólusetningu með Cervarix þurfa bólusettir einstaklingar að fara reglulega í skimun gegn leghálskrabbameini enda ver bóluefnið ekki gegn öllum afbrigðum HPV veirunnar og varnaráhrif þess endast ekki nema í nokkur ár.
Af þessu að dæma virðist ávinningur af bólusetningu gegn HPV harla lítill eða enginn, sérstaklega í ljósi þess að einstaklingar geta náð meiri árangri með því að stunda öruggt kynlíf og fara reglulega í skimun. Hvort tveggja atriði sem hafa engar aukaverkanir.
Hver er áhættan?
Bóluefni innihalda fjölda efna: óvirkar veirur og ýmis stoðefni sem vekja upp viðbrögð ónæmiskerfisins gegn veiruefninu. Auk þess innihalda bóluefni ýmis rotvarnarefni. Skiptar skoðanir eru um hve mikil áhætta fylgir því að hleypa slíkum efnum inn í líkamann.
Samkvæmt upplýsingum frá Glaxo getur bólusetning með Cervarix haft eftirfarandi aukaverkanir:
- Yfirlið, því getur fylgt skjálfti og líkaminn getur orðið stífur.
- Verkir, roði, bólga, þreyta, höfuðverkur, vöðvaverkur, uppkösts og liðverkir.
Tekið er fram að ekki skuli gefa barnshafandi konum Cervarix.
Alvarlegar aukaverkanir þekkjast, hér eru tvö dæmi frá Bretlandi:
Ashleigh (12 ára)  fékk sinn fyrsta skammt af Cervarix þann 15 október 2008 og varð veik hálftíma síðar. Höfuðverkurinn var svo sár að hún hljóðaði. Næstu daga var hún með svima, síðar fékk hún verki í fætur sem voru svo sárir að hún féll við. Hún var lögð inn á Frimley Park Spítalann í tvo daga. Sjúkdómsgreiningin hljóðaði þannig: Svimi og vöðvaverkir líklega vegna bólusetningar. Smám saman versnaði ástand Ashleigh og að lokum gat hún ekki gengið fyrir verkjum. Heimild: Daily Mail 14. desember 2008.
Stacey (17 ára) fékk sitt fyrsta flogakast nokkrum dögum eftir bólusetningu með Cervarix. Á næstu vikum urðu köstin fleiri og að lokum greindist hún með heilaskaða. Nú er Stacey í endurhæfingu að endurlæra einföld atriði eins og að búa til samloku. Heimild: The Telegraph 3. október 2009.
Slík dæmi eru sem betur fer fátíð, líklega innan við 4 af 100.000 og í raun ekkert sem bendir til að Cervarix sé verra en önnur bóluefni að þessu leyti.
Stóra spurningin
Það sem einkennir Cervarix er hversu óljós ávinningur er af notkun bóluefnisins og sú spurning vaknar hvort það sé í raun réttlætanlegt að leggja út í þá fjárfestingu og áhættu sem fylgir þessari bólusetningu?
Sunnudaginn 20. febrúar árið 2011 kynnti Forsetinn þá ákvörðun sína að þjóðin fengi sjálf að ákveða hvort lögin um Icesave III samningana myndu halda gildi. Þar með hófst kosningabarátta milli ríkisstjórnarinnar og þeirra sem vildu að lögunum yrði hafnað.
Samstaða þjóðar gegn Icesave, samtökin sem staðið höfðu að undirskriftasöfnun gegn Icesave III hófust strax handa en það var á brattann að sækja.  Skoðanakönnun Capacent sem birt var 2. mars, sýndi að 65% hyggðust kjósa með samningunum.
Ríkisstjórnin lagði í öflugt kynningarátak. Rökin voru þau að Icesave III samningarnir væru skárri en fyrri samningar og höfnun þeirra gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar: Lánshæfi myndi versna, gjaldeyrishöft festast í sessi, endurreisn tefjast, fjármálamarkaðir lokast, Íslandi yrði stefnt fyrir dómstólum og að öllum líkindum tapa málinu og þá yrði að borga allt í topp með hærri vöxtum.Samninganefndarmenn, þar á meðal Bucheit og Blöndal sem áður höfðu gagnrýnt fyrri samninga, mæltu nú eindregið með Icesave III. Nefndarmenn voru óþreytandi við að koma þessari afstöðu á framfæri í fjölmiðlum og á kynningarfundum víða um land. Óhætt er að segja að kynning Icesave málsins hafi verið mjög einhliða.
Advice hópurinn steig fram til að tala fyrir því að hafna bæri samningunum. Advice boðaði til blaðamannafundar 14. mars til að kynna átakið og meginrök gegn Icesave III, en enginn fjölmiðill sá ástæðu til að senda fréttamann á þann fund.
Advice hóf kynningarátak, sett var upp vefsíða með upplýsingum og greinum eftir mikinn fjölda sérfræðinga. Talsmenn Advice komu fram í fjölmiðlum og héldu erindi á fundum.
Umræðan var mjög virk meðal almennings og mikill fjöldi greina birtist í prentmiðlum, bæði með og á móti. Lögfræðingar og hagfræðingar létu ekki sitt eftir liggja í greinaskrifum.
Þegar á leið bentu skoðanakannanir til þess að forskot Já-manna færi minnkandi.Þann 24. mars steig Áfram hópurinn fram á sviðið til að styðja baráttu ríkisstjórnarinnar fyrir því að fá lögin samþykkt. Viku síðar bentu skoðanakannanir til þess að sveiflan yfir á Nei hliðina hefði hægt mikið á sér.
Þegar tvær vikur voru til kosninga hófu fjölmiðlar að fjalla um samningana og dómstólaleiðina. Þrátt fyrir verulegt flækjustig virtust kjósendur staðráðnir í að komast til botns í málinu. Heimsóknir á vef Advice.is hlupu á þúsundum dag hvern og vinsælustu greinarnar voru lesnar af meira en tíu þúsund manns. Vel yfir tíu þúsund manns horfðu á myndskeið þar sem  Reimar Pétursson hæstaréttarlögmaður útskýrir dómstólaleiðina.
Þegar tæp vika var til kosninga, bentu skoðanakannanir til þess að fólk væri aftur að færast yfir á Nei vænginn, munurinn var orðinn það lítill að allt gat gerst í kosningunum.
Bæklingur frá stjórnvöldum með hlutlausu kynningarefni um Icesave lögin var borinn í hús 4. apríl.Kosið var 9. apríl.
Fyrstu tölur komu klukkan 23 og bentu til þess að þjóðin hefði hafnað lögunum. Lokatölur reyndust afgerandi: lögin voru felld með 60% atkvæða og kosningaþátttaka var 75%.
Þegar niðurstaðan lá fyrir, reið á að koma réttum skilaboðum til fjölmiðla svo niðurstaðan yrði ekki rangtúlkuð. Ríkisstjórnin flaskaði á þessu. Viðbrögð Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra við úrslitunum endurómuðu í heimspressuni:
"We must do all we can to prevent political and economic chaos as a result of this outcome” - Guardian
"The worst option was chosen and has split the country in two“ - BBC
”I fear a court case very much” - Reuters
Nú eru liðnir tíu dagar frá því að lögunum var hafnað. Dómsdagsspár ríkisstjórnarinnar hafa ekki gengið eftir. Moody’s hefur tilkynnt að lánshæfismat Íslands sé óbreytt. Krónan hefur styrkst og skuldatryggingaálag lækkað. Dómsdagsspár stórnvalda rættust ekki og nú keppast ráðherrar við að eigna sér heiðurinn af því. Nær væri að þeir bæðu þjóðina afsökunar á hræðsluáróðrinum.
En hvað má læra af þessu - hverju þarf að breyta?
1. Kynningarefni til kjósenda innihaldi rökin með og móti
Í aðdraganda þjóðaratkvæðis ber innanríkisráðuneyti að dreifa bæklingi með lögunum á öll heimili. Í þetta sinn ákvað Alþingi að ganga lengra og fól ráðuneytinu að útvega einnig í bæklinginn hlutlaust kynningarefni um málið.Advice hópurinn lagði til að báðum fylkingum yrði boðið tiltekið rými í bæklingnum svo kjósendur gætu kynnt sér með- og mótrök, eins og hefð er fyrir í Sviss. Því var hafnað.Advice lagði einnig til að báðar fylkingar fengju að rýna drög að kynningarefni til að ganga úr skugga um hlutleysi þess. Því var einnig hafnað.Það virðist nauðsynlegt að setja reglur um þessi atriði til að jafna aðstöðu beggja fylkinga til að kynna sinn málstað fyrir kjósendum og tryggja að kynningarefni sem kynnt er sem hlutlaust hafi verið rýnt með hliðsjón af því.
2. Tryggja þjóðinni frest til að mynda sér skoðun
Þjóðin á sinn rétt á því að kynna sér málavöxtu, skoða rökin með og móti og mynda sér upplýsta skoðun. Þetta tekur tíma og hér reyndust 48 dagar varla duga. Upplýsingabæklingur stjórnvalda kom ekki í hús fyrr en fimm dögum fyrir kosningar.Tveir mánuðir ættu að vera lágmarksfrestur og engin vanþörf á því að binda þann frest í lög til að halda ríkisstjórnum í skefjum. Athygli vekur að skv. 4. gr. laga nr. 91/2010 um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, skal halda þjóðaratkvæðagreiðslu innan 2 mánaða hafi Forseti beitt málskotsrétti. En hafi þingið sjálft vísað lögum til þjóðarinnar skal halda atkvæðagreiðsluna innan 3 til 12 mánaða. Hvers vegna er kjósendum ekki tryggður neinn lágmarks-umhugsunartími þegar Forsetinn vísar til hennar málum? Þetta er hneisa og þarf augljóslega að breyta. Þjóðin á alltaf að fá sinn tíma til að mynda sér upplýsta skoðun, ekki bara í þeim málum sem þinginu þóknast að leggja fyrir hana.
3. Gera þarf einhverja lágmarkskröfur til fjölmiðla um jafnvægi í miðlun
Fjölmiðlar léku stórt hlutverk í því að upplýsa kjósendur um Icesave III málið. Flestir miðlarnir tóku afstöðu með- eða á móti og hygluðu sínum málstað í hvívetna. Þrátt fyrir það, sáu þeir samt sóma sinn í því að loka ekki alveg á efni frá andstæðingum.En hvað ef miðlarnir hefðu lokað algerlega á andstæð sjónarmið? Hvað ef þeir hefðu allir haft sömu afstöðu til málsins? Hefðu kjósendur þá getað tekið upplýsta ákvörðun?Í nýjum og umdeildum fjölmiðlalögum stendur í 26. gr.:  “Fjölmiðlaveitu sem hefur þá yfirlýstu stefnu að beita sér fyrir tilteknum málstað skal vera óskylt að miðla efni sem gengur í berhögg við stefnu miðilsins.” Ekki verður séð að þetta ákvæði stuðli að jafnvægi í miðlun.Vald fjölmiðla er mikið og það er sjálfsagt að því valdi fylgi lágmarkskrafa um jafnvægi í miðlun svo lýðræðið verði síður hneppt í fjötra þeirra valdablokka sem stjórna fjölmiðlum.
4. Auglýsingar - eiga þeir ríku bara að vinna þann slag?
Pólitískar auglýsingar virka misvel á fólk en á heildina litið þá geta þær samt skipt töluverðu máli. Í þetta sinn virtust báðar fylkingar hafa nægan aðgang að fjármagni til að auglýsa. En það má vel sjá fyrir sér kosningar þar sem aðgangur fylkinga að fjármagni væri mjög ójafn.Það hlýtur að vera æskilegt að úrslit kosninga ráðist fremur af eðli máls og skoðun kjósenda en því hversu vel fylkingar geta höfðað til fjármagnsins. Auglýsingabann er ekki góður kostur, en það mætti setja eitthvað þak á auglýsingamagnið til að jafna leikinn.Uppruni fjármagns getur skipt máli. Eðlilegt er einstaklingar njóti nafnleyndar, en spyrja má hvort fyrirtæki og samtök sem leggja fram fé eigi líka að njóta nafnleyndar. Setja mætti reglu um að enginn einn aðili útvegi meira en 10% af heildarfjármögnun. Eða að þeir aðilar sem greiða meira en 20% njóti ekki nafnleyndar. Viljum við að erlendir aðilar eins og t.d. ESB eða Kína geti tekið beinan þátt í kosningabaráttu eða fjármögnun fylkinga hér á landi í aðdraganda kosninga?
5. Það þarf eftirlit með hlutleysi RÚV
Í lögum nr. 6/2007 um Ríkisútvarpið stendur “Gæta skal fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð.”  Í lögin vantar hins vegar ákvæði um hvernig eftirliti með óhlutdrægni skuli vera háttað og það eru engin viðurlög við misnotkun á RÚV hvað þetta varðar. Starfsfólki RÚV er því í raun gefið algert sjálfdæmi um það hvort það uppfylli kröfur um óhlutdrægni í sínum störfum.  Þetta fyrirkomulag býður hættunni heim.Margir hafa bent á að umfjöllun RÚV hafi verið hlutdræg í Icesave málinu. Meðal þess sem bent hefur verið á er að: starfsmenn RÚV notuðu iðulega orðið “skuld Íslands” þegar “kröfur Breta og Hollendinga” bar á góma. Þegar fræðilegir álitsgjafar voru fengnir til viðtals gleymdist að fá einn frá hvorri fylkingu, og það gleymdist líka að geta þess að álitsgjafarnir voru hlutdrægir, voru jafnvel á kaupi við að halda fram sjónarmiðum stjórnvalda eða höfðu beina fjárhagslega hagsmuni af því að samningar tækjust. Þess var ekki heldur gætt að gefa talsmönnum beggja sjónarmiða jafn langan tíma. Það er augljóst að RÚV þarf aðhald og það þarf að setja lög um slíkt aðhald sem fyrst.
Enginn vill hafa reglur um alla skapaða hluti. En þegar kemur að lýðræðinu í landinu þá er nauðsynlegt að setja ríkisvaldinu, fjármagninu og fjölmiðlum skýrar reglur. Reynslan af Icesave III sýnir okkur að hér þarf að laga til og það er ekki eftir neinu að bíða. Skorum á Alþingi að gera úrbætur sem fyrst.
Þann 3. febrúar lauk annari umræðu um Icesave III lögin með atkvæðagreiðslu. Slæmu fréttirnar voru þær að níu af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins kusu með lögunum. Ríkisstjórnin beið ekki boðanna, þriðja umræða var sett á dagskrá eins fljótt og auðið var og lögin voru endanlega samþykkt af Alþingi 16. febrúar. Reyndar kom einnig tillaga fram um að setja lögin í þjóðaratkvæði, en hún var naumlega felld.
Þann 3. febrúar var andstæðingum Icesave III samninganna orðið ljóst að eina úrræðið í stöðunni var að skora á forsetann að vísa lögunum til þjóðarinnar. Allir biðu eftir því að InDefence hópurinn, sem hafði safnað undirskriftum gegn Icesave II, tæki af skarið við söfnun undirskrifta. En dagarnir liðu hver af öðrum og ekkert bólaði á InDefence.
En þá kom fram á sjónarsviðið nýr hópur, Samstaða Þjóðar gegn Icesave, og þann 11. febrúar var söfnun undirskrifta á vefsíðunni www.kjosum.is komin í fullan gang.
Ríkisstjórnin flýtti þriðju umræðu málsins og það var tekið úr nefnd án þess að ráðrúm fengist til að verða við óskum þingsins um að nánar yrði kannað hvaða fælist í svokallaðri dómstólaleið.
Þann 16. febrúar voru lögin borin undir atkvæði og samþykkt. Sama dag voru lögin komin til Forsetans. Allt var þetta gert með hraði til að minnka svigrúm til að safna undirskriftum gegn lögunum.
Forsetinn boðaði fulltrúa Kjósum.is til fundar við sig á Bessastöðum strax að morgni 18. febrúar. Þá höfðu safnast rúmlega 37 þúsund undirskriftir á aðeins einni viku. Forsetinn tók við undirskriftunum og fékk kynningu á því hvernig þeim hafði verið safnað.
Forsetinn kannaði áreiðanleika undirskriftanna og tilkynnti svo ákvörðun sína á blaðamannafundi sunnudaginn 20. febrúar. Þjóðin myndi kjósa um Icesave III.
Hvað má læra af þessu og hverju þarf að breyta?
1. Ákveðum með lögum fresti til undirskriftasöfnunar
Ríkisstjórnin vildi greinilega ekki að lögin færu í þjóðaratkvæði og því var henni í óhag að gefa langan tíma til söfnunar undirskrifta. Hún skar frestinn niður í 7 daga. Í Sviss taka engin lög gildi fyrr en að 100 dagar hafa liðið frá samþykkt í þinginu. Sá frestur er einmitt hugsaður til þess að kjósendur hafi ráðrúm til að bregðast við lögunum og sanngjarnan frest til að safna undirskriftum gegn þeim. Það virðist full ástæða til að takmarka vald íslenskra stjórnvalda að þessu leiti. Ég legg til að lög taki ekki gildi fyrr en að 30 dögum liðnum frá samþykkt Alþingis. Þessa reglu getur þingið sett sér strax, en síðar mætti binda hana í stjórnarskrá.
2. Setjum reglur um framkvæmd undirskriftasöfnunar
Engar reglur eru til um framkvæmd undirkriftasöfnunar. Þetta er óheppilegt og til þess fallið að rýra trúverðugleika slíkra safnana. Aðstandendur kjósum.is þurftu sjálfir að setja reglur um söfnunina og þótt það hafi tekist ágætlega þá má alltaf deila um útfærslur. Andstæðingar átaksins gagnrýndu útfærsluna og leituðust við að grafa þanbug undan trúverðugleika átaksins. Eðlilegt væri að Alþingi setti reglur um þetta.
3. Höfum eitt kerfi til að safna undirskriftum
Aðstandendur þurftu sjálfir að útvega allan búnað og leggja í ómælda vinnu við hönnun og þróun kerfis svo fólk gæti skrifað undir áskorun á kjósum.is. Fyrst áskoranir af þessu tagi eru komnar til að vera, þá er það eðlilegt hlutverk hins opinbera að útvega slíkt kerfi. Það er algerlega ástæðulaust að leggja slíkt erfiði á þá sem vilja standa að áskorun að smíða ný og ný kerfi. Auk þess er traustara að notast við kerfi sem hefur verið margreynt og þaulprófað.
4. Aðstaða og ráðgjöf fyrir baráttuhópa
Kjósum.is fékk engan stuðning frá hinu opinbera. Færa má gild rök fyrir því að þeir sjálfboðaliðar sem standa að slíku átaki, ættu í það minnsta að fá einhverja lágmarksaðstöðu, leiðbeiningar og jafnvel hóflega fjárhagsaðstoð frá stjórnvöldum til að standa straum af útlögðum kostnaði. Hafa má í huga að sjálfboðaliðar þurfa að takast á við ríkisstjórn sem hefur fjölda manns í vinnu til að halda sínum málstað á lofti. Þessi aðstöðumunur verður aldrei jafnaður, en samt er til bóta að setja reglur um einhvern lágmarksstuðning.
5. Ákveðum hvað þarf margar undirskriftir, það er ekki eftir neinu að bíða
Það eru engar reglur um það hve margar undirskriftir þurfi til að Forseti vísi lögum til þjóðaratkvæðis. Ef Forsetinn vill, þá er honum alveg frjálst að setja sér t.d. þá vinnureglu: að ef 15% atkvæðabærra manna skora á hann að vísa máli til þjóðaratkvæðis, þá verði hann ávallt við því. Alþingi gæti sömuleiðis sett sér sambærilega reglu hvenær sem er. En að lokum væri auðvitað traustast að slík regla væri fastsett í stjórnarskrá Íslands.
6. RÚV þarf að gæta betur að hlutleysi sínu
Afstaða fjölmiðla getur ráðið miklu um hvort takist að safna nægilega mörgum undirskriftum á tilsettum tíma. Ríkisfjölmiðillinn RÚV er einn öflugasti fjölmiðill landsins og sá sem þjóðin treystir einna best, ef marka má skoðanakannanir.Samkvæmt lögum er RÚV ætlað að gæta fyllsta hlutleysis. Draga má í efa að það hafi tekist hvað átak kjósum.is varðar. RÚV fjallaði sáralítið um átakið, miðað við aðrar sambærilegar safnanir, viðkvæðið var að “allir væru orðnir leiðir á fréttum af Icesave”.Þó brá svo við að þegar bloggari spratt fram og ásakaði kjosum.is hópinn um svindl þá var honum boðið í Kastljósið svo hann gæti látið illa ígrundaðar ásakanir sínar dynja á talsmanni Kjósum.is - í beinni. Ekki reyndust þessar ásakanir á rökum reistar og landsmenn voru því engu nær um neitt sem máli skipti. En hvers vegna fjallaði Kastljósið aldrei um tilvist þessa mikilvæga átaks eða efnisrökin með og móti því?
Látum þetta duga um söfnun undirskrifta. Í næsta pistli mun ég fara yfir kosningabaráttuna sjálfa. Baráttan hófst sama dag og forsetinn tilkynnti að Icesave III lögin færu í þjóðaratkvæðagreiðslu - og af henni má ýmislegt læra.
Samkvæmt öllum mælikvörðum eru Íslendingar í röð fremstu þjóða hvað tölvuvæðingu og almennt tölvulæsi varðar. Íslendingar státa líka af lengri lýðræðishefð en flestar þjóðir Evrópu. Í ljósi þess hefði alveg mátt búast við því að Ísland tæki forystu í því að innleiða rafrænar kosningar.  En af einhverjum ástæðum erum við ennþá yddandi blýanta, troðandi kjörseðlum í innsiglaða trékassa og teljandi upp úr þeim sólarhringunum saman. Kostnaðurinn við þetta úrelta fyrirkomulag hleypur á hundruðum milljóna í hvert sinn.
Eistar kusu rafrænt til þings í mars sl. en tóku fyrst upp rafrænar kosningar árið 2005 og hefur reynslan verið svo góð að aðrar þjóðir líta nú til þeirra fordæmis.
Árið 2002 voru rafræn skilríki lögleidd í Eistlandi. Allir íbúar Eistlands hafa slík skilríki og rafrænar undirskriftir gerðar með þessum skilríkjum hafa sama lagagildi og venjulegar undirskriftir. Nota þarf sérstaka kortalesara svo tölvur geti lesið skilríkin, en þeir kosta lítið. Einnig mun vera hægt að sækja auðkenni í farsíma og nota það í stað rafræns skilríkis.
Í Eistlandi fer rafræn kosning þannig fram að kjósandinn fer á vefsíðu kjörstjórnar og sækir þangað kosningaforrit. Forritið keyrir á tölvu kjósandans, les rafræn skilríki hans og birtir kjörseðil á skjánum. Kjósandinn greiðir atkvæði og það er sent yfir netið. Staðfesting um að kosning hafi tekist er birt á skjánum.
Áður en atkvæðið er sent, er það dulkóðað með lykli en auðkenni notandans er dulkóðað með öðrum lykli. Með þessu móti er kjósandanum tryggð nafnleynd og einnig er tryggt að hann geti kjósi aðeins einu sinni.
Rafræn kosning hefst 10 dögum fyrir kjördag og lýkur 4 dögum fyrir kjördag. Þetta fyrirkomulag er til að koma í veg fyrir nauðung eða viðskipti með atkvæði. Kjósandi getur kosið eins oft og hann vill rafrænt, en það er síðasta val hans sem gildir. Kjósandi getur líka farið á kjörstað og þá gildir atkvæðið sem hann greiðir þar. Með þessu móti er nánast útilokað að kjósandi verði neyddur eða keyptur til að kjósa eitthvað annað en hann vill. Kosningin er því leynileg í reynd. Innan við 2% kjósenda hafa nýtt þennan möguleika til að skipta um skoðun.
Eistar hafa nú kosið fimm sinnum með rafrænum hætti. Árið 2005 í sveitarstjórnarkosningum, árið 2007 í kosningum til þings, árið 2009 til evrópuþings, árið 2009 í sveitarstjórnarkosningum og í mars á þessu ári í þingkosningum. Hlutfall kjósenda sem kjósa rafrænt hefur farið stöðugt vaxandi, nú síðast var fjórðungur allra atkvæða greiddur með þeim hætti.
Ítarlegar rannsóknir á kerfinu og reynslunni eru fyrirliggjandi og engin vandamál gert vart við sig. Kjósendur eru almennt ánægðir með þennan valkost enda nokkuð hagræði í því að þurfa ekki að fara á kjörstað. Kerfið hefur líka margborgað sig fjárhagslega.
Það er löngu tímabært að taka upp rafrænar kosningar á Íslandi.
Heimildir:
Ný glærukynning um kosningakerfið.
Lýsing á kosningakerfinu.
Skýrslur og almenn gögn um rafrænar kosningar í Eistlandi.
Flestir hafa skoðanir á pólitík og auðvitað eru stjórnendur fyrirtækja þar engin undantekning. Það kemur stundum fyrir að stjórnendur beiti vörumerki og áhrifum fyrirtækisins til að vinna sínum pólitísku skoðunum fylgi í samfélaginu. Hér er því haldið fram að slíkt sé í misnotkun á aðstöðu og geti leitt til tjóns bæði fyrir eigendur og samfélagið.
Stórfyrirtæki eru iðulega í eigu fjölmargra hluthafa. Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að allir eigendur hafi sömu skoðun í pólitík, hvað þá að meirihluti hluthafa sé sammála pólitískum skoðunum stjórnandans. Tillitsemi við ólíkar skoðanir hluthafa er því gild ástæða fyrir því að stjórnendur gæti hlutleysis í störfum sínum.
En tillitsemi er þó ekki eina ástæðan. Flest fyrirtæki hafa hagsmuni af því að höfða til sem flestra viðskiptavina, en ef fyrirtækið tekur afgerandi pólitíska afstöðu getur slíkt virkað fráhrindandi fyrir tiltekinn hluta viðskiptavina með tilheyrandi tapi fyrir fyrirtækið.
Dæmi eru um að stjórnendur stórfyrirtækja beiti stjórnvöld þrýstingi og hóti jafnvel að fara með fyrirtækin úr landi. Þar er illa farið með áhrifastöðu og traust eigenda.Það væri líka óheppilegt fyrir lýðræðið í landinu ef fyrirtækjum væri almennt beitt með þessum hætti. Eftir því sem fyrirtæki beita sér meira, því minni verða áhrif kjósenda.
Farsælast er að stjórnendur sneiði hjá því að blanda fyrirtækjum í pólitísk álitamál. Þeir geta að sjálfsögðu tjáð sig opinberlega um pólitík, en þá er réttast að taka fram að um persónulegar skoðanir sé að ræða, en ekki afstöðu fyrirtækisins.
Tímasetningin álitsins er grunsamleg en niðurstaðan undarlegri. Það stenst ekki að ríki sem tekur á sig auknar fjárhagsbyrðar teljist þar með betri lántakandi.
Þegar rýnt er í fréttatilkynningu Reuters um álit Moody's blasir skýringin við:
Moody's said that if the current bill is rejected, the issue could have to be settled in court. This could take a long time and cost Iceland more than the 50 billion Iceland crowns ($426 million) the government believes to be the maximum tab the Icelandic taxpayer will have to pick up under the current deal.
Sjá: http://uk.reuters.com/article/2011/02/23/iceland-rating-idUKLDE71M1GP20110223
Ekki ber á öðru en að Moody's telji að VERSTA mögulega niðurstaða Icesave samningsins fyrir Íslendinga sé aðeins 50 milljarðar króna. Það væri óskandi. Hið rétta er að versta niðurstaða samningsins gæti vel numið hátt í 250 milljörðum. Til þess þyrftu heimtur aðeins að versna um 15% og gengi krónunar að veikjast um 1% á ársfjórðungi.
Því miður er ekki er hægt að sjá af fréttini hvaða útkomur Moody's gefur sér verði dómstólaleiðin farin af viðsemjendum.
Nú er spurning hvort Ríkisstjórn Íslands hafi séð ástæðu til að leiðrétta þennan alvarlega misskilning hjá Moody's?
Í Evrópusambandinu er lagasetning í höndum framkvæmdastjórnarinnar, sem er skipuð 27 fulltrúum sem eru ekki kosnir, heldur tilnefndir af aðildarríkjum. Framkvæmdastjórnin ein hefur vald til að leggja fram lagafrumvörp og hún hefur auk þess allt framkvæmdavald. Þrískipting valdsins er því ekki fyrir hendi.
Evrópuþingið hefur ekki vald til að leggja fram lagafrumvörp. Þingið hefur aðeins eftirlit með framkvæmdastjórninni og samþykkir lagafrumvörp hennar. Þingið getur ekki gert breytingar á lagafrumvörpum, og þarf hreinan meirihluta þingmanna til að stöðva frumvarp. Til að lýsa vantrausti á framkvæmdastjórnina þarf ⅔ þingsins.
Lýðræðishalli
Í Evrópusambandinu er sérstakt orð yfir þann áhrifamissi sem kjósendur mega þola þegar ákvarðanataka flyst frá þjóðþingum aðildarríkja Evrópusambandsins til Brussel. Orðið er lýðræðishalli.
Í Brussel eru flestar ákvarðanir teknar ef embættismönnum, en ekki af lýðræðislega kjörnum fulltrúum. Þróunin hefur frá upphafi verið sú að ákvarðanataka í sífellt fleiri málaflokkum færist frá lýðræðislega kjörnum þjóðþingum til embættismanna í Brussel. Lýðræðishallinn fer því vaxandi.
Niðurstöður könnunar meðal íbúa Evrópusambandsins (*1) virðast styðja þetta. Þannig töldu 56% svarenda rödd sína skipta máli í landsmálum, en hinsvegar töldu aðeins 34% rödd sína skipta máli í Evrópumálum.
Fjarlægð eykst milli kjósenda og fulltrúa
Þegar ákvarðanir flytjast frá þjóðþingum til Brussel, þá eykst um leið fjarlægð milli kjósenda og þeirra sem véla um ákvarðanir og löggjöf. Það verður því mun erfiðara fyrir kjósendur að ná sambandi við kjörna fulltrúa sína, eða safnast saman og mótmæla.
Einnig verður erfiðara fyrir fulltrúa sem lifir og hrærist í Brussel að setja sig í spor fjarlægra kjósenda.
Lýðræðið virðast vera til trafala
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur rekið sig á það að íbúum aðildarríkjanna er ekki fyllilega treystandi til að kjósa yfir sig meiri samruna og samþjöppun valds í Brussel.  Það olli töfum á samrunanum, þegar ný stjórnarskrá Evrópusambandsins var felld í þjóðaratkvæðagreiðslum í Frakklandi og Hollandi.
Í stað þess að taka mark á vilja kjósenda, lagði framkvæmdastjórnin fram nýjan sáttmála (Lissabon) sem fól í sér nánast sömu breytingar og stjórnarskráin sem kjósendur höfðu hafnað.
Lissabon sáttmálinn var hins vegar ekki settur í þjóðaratkvæði, heldur var hann samþykktur af þjóðþingum aðildarríkjanna. Aðeins Írland lagði hann í dóm kjósenda sem sögðu “nei”. Þar sem það var rangt svar, var “fræðslan” stórefld og Írar látnir kjósa aftur.
Minnkandi þátttaka í kosningum til Evrópuþings
Þátttaka í kosningum til Evrópuþingsins hefur farið minnkandi frá upphafi og er nú komin niður í 43%. Áhugaleysi kjósenda skýrist kannski af því hve Evrópuþingið er áhrifalaust. Það er í raun framkvæmdastjórnin sem hefur löggjafarvaldið og kjósendur geta ekki kosið fulltrúa í hana.
Frumkvæðisréttur fólksins er til málamynda
Í Lissabon sáttmálanum kom inn ákvæði (*2) um að ein milljón íbúa Evrópusambandsins geti  skorað á framkvæmdastjórnina að leggja fram frumvarp að lögum um tiltekið málefni.
Þess er krafist að undirskriftir safnist frá 0.5% kjósenda, sem koma frá að minnsta kosti þriðjungi aðildarríkja.
Vandinn er sá að það krefst mikilla fjármuna að safna milljón undirskriftum frá svo mörgum ríkjum og engir styrkir eru í boði til þess.
Jafnvel þótt takist að safna undirskriftum þá er samt erfiðasti hjallin eftir, því framkvæmdastjórnin hefur algert sjálfdæmi um hvort hún tekur málið á dagskrá eða ekki.
Þannig söfnuðust meira en 1,2 milljón undirskriftir til stuðnings þeirri tillögu að Evrópuþingið hætti sínu kostnaðarsama flakki milli Brussel og Strasburg. Forsetar Evrópuþingsins létu sér fátt um finnast og höfnuðu því að tillagan yrði rædd í þinginu.
Vaxandi gjá á milli leiðtoga og íbúa
Skoðanakannanir á vegum Evrópusambandsins (*1) sýna vaxandi andstöðu almennings við flutning ákvarðana frá aðildarríkjum til Brussel. Á sama tíma vinna leiðtogarnir að sífellt nánari samruna og miðstýringu. Þetta veit ekki á gott.
Kannanir staðfesta einnig að þeim fer fækkandi sem finnst sambandið “standa fyrir lýðræði”, hlutfallið lækkaði úr 26% í 19% milli árana 2009 og 2010. Aðeins 50% íbúa telja “skilvirkni lýðræðis viðunandi” í Evrópusambandinu, en það er lækkun úr 54% frá því ári áður. (*1)
Niðurstaða
Evrópusambandið er ekki lýðræðislegt, allavega ekki í þeim skilningi að þar sé farið að vilja íbúanna eða fylgt góðri venju um aðskilnað framkvæmda- og löggjafarvalds.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit er staðreyndin sú að Evrópusambandið er ólýðræðislegt bákn sem þróast hröðum skrefum til meiri miðstýringar, þvert gegn vilja íbúanna.
Heimildir:
(*1) Könnun Eurobarometer frá því í Maí 2010, var birt í Nóv 2010
http://ec.europa.eu/public_opinion/archives/eb/eb73/eb73_vol1_fr.pdf
(*2) Frumkvæðisréttur:
http://ec.europa.eu/dgs/secretariat_general/citizens_initiative/index_en.htm
Fréttablaðið birti þann 5. febrúar viðtal við Lárus Blöndal undir fyrirsögninni “Dómsmál margfalt áhættusamara”. Margt er undarlegt í þessu viðtali en það hefst þannig:
Stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi kunna að fá bakþanka vegna þeirra vaxtakjara sem þau hafa boðið Íslendingum í Icesave-deilunni.  Lárus Blöndal hæstaréttarlögmaður og fulltrúi stjórnarandstöðunnar í samninganefnd Íslands um Icesave, segir það umfram hans væntingar að náðst hafi saman um þau vaxtakjör sem Íslendingum bjóðast í samningnum.
Lárus áréttar að íslenska samninganefndin líti þannig á að Bretar og Hollendingar taki þátt í fjármagnskostnaði með Íslendingum. Þeir kynni málið hins vegar þannig heima fyrir að þeir séu að fá endurgreitt lán.
„Undir þeim formerkjum  lítur mjög  sérkennilega  út  að þeir skuli samþykkja að fá endurgreitt lán með 2,64 prósenta vöxtum meðan lán sem Írum bjóðast eru með 5,8 prósenta vöxtum. Þetta getur augljóslega valdið vandræðum og Lee Buchheit  [formaður samninganefndar Íslands] hefur haft af því áhyggjur hvernig þetta muni þróast þegar fleiri lönd þurfa fjárhagslega fyrirgreiðslu,“
Það er afar sérstakt að Lárus skuli minnast á þá vexti sem Írum bjóðast á láni frá Bretum og Evrópusambandinu. Kjörin á þeim “björgunarpakka” hafa einmitt verið harðlega gagnrýnd. Raunverulegur fjármögnunarkostnaður er líklega undir 3% en samt eru Írar látnir borga 5,8% í einhverju allt öðru skyni en að bjarga þeim úr vanda.
Ólíkt Icesave þá er ljóst að ef Írar taka lán á þeim kjörum, þá er engin vafi á að þeir skuldi andvirðið. Í Icesave málinu er hins vegar deilt um hvort okkur beri yfir höfuð að ábyrgjast skuld einkabankans. Flestir telja meiri líkur en minni á því að við myndum vinna slíkt mál. Í raun er undarlegt að við skulum fallast á að greiða nokkra vexti þegar skylda okkar er ósönnuð.
Fljótt, fljótt skrifum uppá - áður en þeir sjá að sér
Lárusi og Bucheit tókst að semja um verulega lækkun vaxta og voru aðalrök þeirra að deila mætti um hvort krafan væri lögleg. Ef nokkra vexti ætti að greiða ættu þeir í mesta lagi að endurspegla útlagðan fjármagnskostnað viðsemjenda, ekkert umfram það. Viðsemjendur féllust á þessi góðu rök. En í viðtalinu við Fréttablaðið viðrar Lárus áhyggjur af því að Bretar og Hollendingar kunni nú að sjá eftir því.
“Lárus og telur, að eftir því sem vikurnar líði aukist hættan á að Bretum og Hollendingum detti í hug að betra sé að komast út úr málinu frekar en að búa til fordæmi sem aðrar þjóðir gætu vísað í.”
Ætli Bretar og Hollendingar hefðu gert slíkan samning ef þeir teldu hann ekki ásættanlegan? Væru þeir ekki nú þegar búnir að koma sér út úr samningnum ef þeir vildu?
Þetta með fordæmisgildi samningsvaxta v. Icesave kröfu, sem ekki hefur verið sýnt fram á að sé lögvarin, hlýtur að teljast frekar langsótt. Evrópusambandið ákveður vexti í “björgunaraðgerðum” á pólitískum grundvelli þar sem allt önnur sjónarmið ráða ferð og Icesave skiptir þar engu máli.
Annar snúningur ekki í boði?
Lárus er svartsýnn á að hægt sé að ná betri samningi.
„Það kæmi mér mjög á óvart ef Bretar og Hollendingar væru tilbúnir til að setjast niður aftur,“
Það er eflaust rétt hjá Lárusi að samninganefndirnar hafa lokið sínu starfi og hafa því ekkert fleira um að ræða að óbreyttu. Það þýðir hins vegar ekki að þjóðin getir ekki sett skilyrði fyrir sínu samþykki.
Lárus telur að ef Alþingi samþykki ekki samninginn muni viðsemjendur fara dómstólaleiðina. Það getur reyndar vel verið, enda standa þeir þá ekki frammi fyrir öðrum valkosti. Lárus gleymir alveg þeim möguleika að bjóða viðsemjendum okkar upp á einhvern valkost við dómstólaleiðina.
Það sem vantar: Valkostur fyrir Breta og Hollendinga
Samninganefndin gerði sitt besta en niðurstaðan er samt óásættanleg fyrir Íslendinga. Líklega átti samninganefnd viðsemjenda erfitt með að hemja sig í kröfunum, en það þýðir samt ekki að yfirvöld í Bretlandi og Hollandi vilji halda niðurstöðu nefndarinnar til streitu. Samninganefnd er eitt og yfirvöld annað.
Það er óhjákvæmilegt að málið fari í þjóðaratkvæðagreiðslu, en núverandi samningsdrögum verður að öllum líkindum hafnað ef þau verða lög fyrir þjóðina. Ef Alþingi vill í raun vinna að lausn Icesave deilunnar á það tvo kosti.
Beita landsmenn hræðsluáróðri og blekkingum í þeirri von að þeir samþykki vondan samning í þjóðaratkvæðagreiðslu, eða
Setja fyrirvara við samninginn sem gerir áhættuna viðráðanlega og líklegt væri að landsmenn samþykki í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Verði leið 2. farin munu Bretar og Hollendingar hafa samþykktan samning í höndunum - góðan valkost við dómstólaleiðina. Það er auðvitað ekki víst að þeir myndu fallast á útkomuna, en það er alveg eins líklegt. Þeir gætu líka prúttað eða farið hina margumræddu dómstólaleið sem er þó ólíklegast.
Ef þeir velja dómstólaleiðina er það samt ekki endanleg niðurstaða. Dómsmál tæki langan tíma og mörg tækifæri gæfust til að taka upp viðræður á ný.
Ef við töpum málinu, sem er ólíklegt, er heldur ekki víst að við töpum því illa. Minnstar líkur eru á slæmu tapi.